Fjárfestingartekjur
Fjárfestingartekjur eru tilkomnar vegna ávöxtunar af fjárfestingum sjóðsins í verðbréfum.
Framlag ávöxtunar á árinu 2023 var jákvætt sem rekja má til hækkunar á erlendum verðbréfamörkuðum og innlendum skuldabréfum.
Framlag ávöxtunar á árinu var jákvæð eftir erfitt ár árinu áður
Hreinar fjárfestingartekjur
Fjárfestingartekjur af eignarhlutum í félögum og sjóðum lækkuðu verulega árið 2022 vegna verðlækkana á markaði.
Tekjur af eignarhlutum
Eignarhlutir í félögum og sjóðum skiptast í skráða og óskráða hlutabréfaeign og mismunandi tegundir sjóða.
Tekjur af eignarhlutum
Fjárfestingartekjur flokkast í arðstekjur, áhrif gjaldmiðla og virðisbreyting eigna.
10 stærstu eignarhlutir
Brú | Bókfært virði | Hlutfall | Hreinar tekjur | Hlutfall | Eignaflokkur | |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | Vanguard S&P 500 UCITS ETF | 26.650 | 14,1% | 4.600 | 20,9% | Hlutabréfasjóður |
2 | iShares MSCI USA SRI UCITS ETF | 22.787 | 12,1% | 3.543 | 16,1% | Hlutabréfasjóður |
3 | iShares MSCI Europe SRI UCITS ETF | 11.784 | 6,2% | 1.396 | 6,3% | Hlutabréfasjóður |
4 | S&P 500 Inform. Technology Index | 10.395 | 5,5% | 3.337 | 15,1% | Hlutabréfasjóður |
5 | Arion banki hf. | 7.957 | 4,2% | 581 | 2,6% | Hlutabréf |
6 | Hagar hf. | 7.842 | 4,1% | 963 | 4,4% | Hlutabréf |
7 | T. Rowe Price - U.S. Equity Fund | 6.862 | 3,6% | 1.007 | 4,6% | Hlutabréfasjóður |
8 | Íslandsbanki hf. | 5.862 | 3,1% | -142 | -0,6% | Hlutabréf |
9 | WELL STRAT EUR EQ-S EUR AC | 5.695 | 3,0% | 640 | 2,9% | Hlutabréfasjóður |
10 | MORGAN ST-US GROWTH FD-Z | 5.667 | 3,0% | 1.711 | 7,8% | Hlutabréfasjóður |
Aðrir | 77.499 | 41,0% | 4.412 | 20,0% | ||
Samtals | 189.002 | 22.048 |
Tekjur af skuldabréfum
Skuldabréf eru annars vegar metin á gangvirði og hins vegar eru bréf sem sjóðurinn ætlar að halda til gjalddaga færð á afskrifuðu kostnaðarverði miðað við upphaflega ávöxtunarkröfu.
Tekjur af skuldabréfum
Hreinar tekjur af skuldabréfum metnum á gangvirði eru vaxtagreiðslur og gangvirðisbreytingar.
Tekjur af skuldabréfum
Hreinar tekjur af skuldabréfum metnum á kaupkröfu eru vaxtagreiðslur og verðbætur, áfallnar vaxtagreiðslur og verðbætur, áhrif gjaldmiðla og breytingar á varúðarniðurfærslu.