Iðgjöld
Iðgjöld veita réttindi til eftirlauna og áfallatrygginga.
Iðgjöld eru greidd til A og V deildar sjóðsins af heildarlaunum en eru almennt greidd af dagvinnulaunum í B deild. Réttindi sjóðfélaga í B deild eru tryggð með bakábyrgð launagreiðanda.
Iðgjald í A deild er 15,5% af heildarlaunum þar sem hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 11,5%.
Iðgjald í V deild er 15,5% af heildarlaunum þar sem hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er annað hvort 11,5% en hægt er að ráðstafa 3,5% í séreign.
Iðgjald í B deild er 12,0% af dagvinnulaunum og eftir atvikum af vaktaálagi og orlofs- og persónuuppbót. Ekki er greitt iðgjald af yfirvinnu. Hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 8,0%.
Lagabreytingar höfðu áhrif á V deild en iðgjald er nú 15,5%
Iðgjaldagreiðslur
Aukaframlag í B deild er tilkomið vegna bakábyrgðar sveitarfélaga. Aukaframlag í A deild er einkum tilkomið vegna framlags úr Varúðarsjóði.
Iðgjaldagreiðslur
Fjöldi virkra sjóðfélaga
Virkum sjóðfélögum sem greiða iðgjöld í A og V deild fjölgar á milli ára en þeim fækkar í B deild því hún er lokuð nýjum sjóðfélögum.
Meðalaldur
Meðalaldur virkra sjóðfélaga eftir deildum á árinu 2023.
Launagreiðendur
V deild er öllum opin og hefur því fleiri launagreiðendur en hinar deildirnar.
Launagreiðendur
Launagreiðendur | 2023 | Hlutfall | |
---|---|---|---|
1 | Reykjavíkurborg | 7.295 | 32,5% |
2 | Kópavogsbær | 1.837 | 8,2% |
3 | Hafnarfjarðarkaupstaður | 1.342 | 6,0% |
4 | Akureyrarbær | 913 | 4,1% |
5 | Garðabær | 839 | 3,7% |
6 | Reykjanesbær | 651 | 2,9% |
7 | Mosfellsbær | 615 | 2,7% |
8 | Sveitarfélagið Árborg | 566 | 2,5% |
9 | Strætó bs. | 364 | 1,6% |
10 | Slökkvilið höfuðborgarsvæðis bs. | 343 | 1,5% |
Aðrir | 7.705 | 34,3% | |
Samtals | 22.470 |