Kostnaður
Kostnaði sjóðsins er skipt í rekstrarkostnað og fjárfestingargjöld.
Rekstrarkostnaður er skrifstofu- og stjórnunarkostnaður sjóðsins.
Fjárfestingargjöld eru þóknanir til fjármálafyrirtækja og skiptast þær í beinar þóknanir, sem greiddar eru samkvæmt samningum eða gjaldskrá, og óbeinar þóknanir sem koma fram í gengismun í viðskiptum eða vaxtatekjum.
Rekstrarkostnaður var undir samþykktri áætlun sjóðsins á árinu
Kostnaður
Rekstrarkostnaður hækkaði um 20% á milli ára og reyndist undir samþykktri áætlun sjóðsins á árinu. Þá hefur rekstrarkostnaður sem hlutfall af meðalstöðu hreinnar eignar til greiðslu lífeyris og sem hlutfall af iðgjöldum lækkað milli ára. Fjárfestingargjöld lækkuðu um 7% sem skýrist af lækkunum á óbeinum þóknunum erlendra sjóða vegna mun lægri árangurstengdra þóknana.
Fjöldi stöðugilda
Síðastliðin fimm ár hefur meðalfjöldi stöðugilda haldist nánast óbreyttur.
Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður
Lykilhlutföll
Oft er horft á rekstrarkostnað í hlutfalli við aðrar stærðir sjóðsins eins og iðgjöld og meðalstöðu hreinnar eignar.
Bein fjárfestingargjöld
Bein fjárfestingagjöld lækka um 20% einkum vegna lægri kaup- og söluþóknanna.
Óbein fjárfestingargjöld
Óbeinar þóknanir erlendra sjóða hafa hækkað mikið á síðustu árum sem er í takt við stefnu sjóðsins um stækkun eignaflokksins. Á árinu 2023 drógust þær saman vegna lækkana á árangurstengdum þóknunum.