Tryggingafræðileg staða
Athugun á tryggingafræðilegri stöðu hefur þann tilgang að meta eignir sjóðsins á móti þeim skuldbindingum sem felast í áunnum réttindum og framtíðarréttindum sjóðfélaga til lífeyris.
Í tryggingafræðilegri úttekt er metið hvort jafnvægi sé milli heildareigna og heildarskuldbindinga lífeyrissjóðsins. Þannig er annars vegar lagt mat á hreina eign sjóðsins til greiðslu lífeyris ásamt reiknuðu núvirði framtíðariðgjalda virkra sjóðfélaga og hins vegar núvirði væntanlegs lífeyris vegna þegar greiddra iðgjalda. Ef mismunur, á þannig reiknuðum heildareignum og heildarskuldbindingum, er meiri en 10% er hlutaðeigandi sjóði skylt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum sjóðsins. Sama gildir ef munur hefur haldist meiri en 5% samfellt í fimm ár.
Miðað er við að ávöxtun eigna sjóðsins verði árlega 3,5% umfram hækkun vísitölu neysluverðs.
Við tryggingafræðilega úttekt er miðað við að ávöxtun eigna sjóðsins verði árlega 3,5% umfram hækkun vísitölu neysluverðs
Samþykktabreytingar fyrir A og V deild
Breytingar voru gerðar á árinu bæði á jafnri réttindaávinnslu í A deild og áunnum réttindum í A deild og V deild sjóðsins. Ástæða breytinganna var tryggingafræðilegur halli sem var tilkominn annars vegar vegna innleiðingu á nýju reiknilíkani Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga á lífslíkum landsmanna þar sem gert er ráð fyrir að lífaldur haldi áfram að hækka og hins vegar vegna slakrar ávöxtunar á árinu 2022.
Með þeim breytingum á samþykktum sjóðsins sem varða réttindi í A og V deild eiga deildirnar að geta staðið við skuldbindingar sínar í samræmi við markmið og áskilnað laga nr. 129/1997 og samþykkta sjóðsins.
Tryggingafræðileg staða
Tryggingafræðileg staða batnar frá fyrra ári þar sem breytingar voru gerðar á samþykktum sjóðsins.
Áfallin lífeyrisskuldbinding
Áfallin lífeyrisskuldbinding sýnir réttindi sem núverandi sjóðfélagar og lífeyrisþegar hafa áunnið sér.
2023 | 2022 | 2021 | 2020 | 2019 | |
---|---|---|---|---|---|
Ellilífeyrir | 256.452 | 238.831 | 201.168 | 161.485 | 140.531 |
Örorkulífeyrir | 27.148 | 25.304 | 20.400 | 15.734 | 13.193 |
Makalífeyrir | 5.813 | 5.468 | 4.671 | 4.843 | 4.222 |
Barnalífeyrir | 792 | 700 | 549 | 454 | 356 |
Núvirði framtíðarrekstrarkostnaðar* | 4.203 | 3.694 | 3.149 | 2.641 | |
Áfallin skuldbinding samtals | 294.406 | 273.997 | 229.937 | 185.156 | 158.302 |